Marta Jónsdóttir
Lögfr. og lögg.fasteignasali

Marta er með yfir 17 ára starfsreynslu, bæði sem lögfræðingur og stjórnandi á einkamarkaði og hjá hinu opinbera. Hún var framkvæmdastjóri Kadeco, Þróunarfélags Keflavíkurflugvallar ehf., framkvæmdastjóri Alþjóðlegra bifreiðatrygginga á Íslandi sf., starfaði hjá Innanríkisráðuneytinu þar sem hún fór með umferðarmál, var yfirlögfræðingur Umferðarstofu, deildarstjóri hjá Samgöngustofu og var verkefnastjóri þinglýsingadeildar hjá sýslumanninum í Reykjavík, ofl.

Marta hefur sótt sér ýmsa viðbótarmenntun og starfsréttindi, s.s. nám í samningatækni við Harvard Business School, löggildingu sem fasteigna- og skipasali, og setið námskeið í sáttamiðlun.

Marta hefur auk þess setið í fjölda stjórna og nefnda, á innlendum og alþjóðlegum vettvangi. Þá er hún í yfirkjörstjórn Norðvesturkjördæmis.